Eru fyrirtækin að gleyma orkunni? Og við borgum brúsann
Á meðan ríki heimsins búa sig undir næstu orkukreppu, sýnir ný OECD-rannsókn að gríðarleg orka liggur ónotuð hjá fyrirtækjum — og að lausnirnar eru þegar til.
Orkukreppa er ekki bara liðin tíð. Verð á orku í heiminum þrefaldaðist á milli 2020 og 2022. OECD-löndin eyddu um 0,7% af vergri þjóðarframleiðslunni í að hlífa heimilum og fyrirtækjum við áföllum af þessum völdum. Nú er staðan þokkalega kunnugleg. Það eru átök í Mið-Austurlöndum sem valda meiriháttar truflun á orkumörkuðum í heiminum. Þau hafa valdið verðhækkunum og aukið sveiflur á fjármálamörkuðum. Spurningar um hvernig lönd heimsins nota orku eru enn á ný komnar til sögunnar og svörin eru ekki fagnaðarefni. Ísland er ekki endilega í sömu stöðu og önnur lönd, enda notum við talsvert af orku sem við framleiðum sjálf.
Tuttugu sinnum meira — í sömu grein
Ný OECD-rannsókn sýnir að fyrirtæki sem eru efst á lista yfir nýtingu á orku, framleiða um 20 sinnum meira virði miðað við nýtingu á orkunni, en þau sem eru neðst á listanum, og þá innan sömu greinar. Þetta er ekki samanburður milli ólíkra atvinnugreina eða landa. Þetta er munurinn á til dæmis tveimur verksmiðjum sem framleiða sömu vöruna, í sama landi, á sama tíma.
Til að setja þetta í samhengi, þá er þessi mismunur á nýtingu á orku um fjórum sinnum meiri en sést í sambandi við framleiðni vinnuafls. Við vitum væntanlega að sumir starfsmenn sýna meiri afköst en aðrir. En í varðandi nýtingu á orku er bilið mun meira.
Rannsókn OECD byggir á opinberum gögnum um framleiðslufyrirtæki með að minnsta kosti 20 starfsmenn í níu löndum og nær yfir tímabilið 1995–2021. Þetta eru sem sé ekki tilgátur heldur mælanleg gögn um hvernig fyrirtæki breyta orku í verðmæti.
Hvað þýðir þetta?
Ef fjórðungur fyrirtækja sem eru með hvað verstu nýtingu á orku gætu komist meðal þeirra fyrirtækja sem eru meðal þeirra sem eru með nýtingu á bilinu 25 til 50%, sem í sjálfu sér er ekkert góð frammistaða, gæti það skilað um 40% lægri notkun á orku, án þess að framleiðslan minnkaði. Þetta skiptir miklu máli fyrir atvinnulíf í hverju landi.
Á sama hátt ef öll fyrirtæki meðal þeirra sem eru í neðri helmingi þeirra sem nýta orkuna hvað verst, gæti það skilað um 60% betri orkunýtingu, miðað við að framleiðsla þeirra væri óbreytt.
Þessar tölur kalla ekki á nýja tækni eða rannsókna. Tæknin er til. Spurningin er bara hvernig við fáum fyrirtækin til að nota hana.
Af hverju er þetta ekki gert?
Ef þetta er rétt sem rannsókn OECD fullyrðir og ef sparnaðurinn er svona augljós, hvers vegna er svona mikill munur á því hvernig fyrirtækin nota orkuna?
Ung fyrirtæki og þau sem nota nýrri framleiðslutækni nýta orkuna oft betur. Stærri fyrirtæki sýna oft verri nýtingu á orku. Þetta er að hluta til vegna þess að stærð þeirra gefur þeim möguleika á að semja um lægra orkuverð. Það á reyndar líka við að þau njóta í mörgum löndum ódýrari orku- og skatta eða fá ýmiskonar undanþágur.
Þetta skiptir miklu máli þar sem lægra verð dregur úr hvatanum til að bæta sig. Stór fyrirtæki borga minna fyrir orkuna, svo þau hafa minni ástæðu til að nýta hana vel. Og þar sem þau greiða minna en minni fyrirtækin er orka þeirra í reynd niðurgreidd á kostnað samkeppni.
Hvað geta stjórnvöld gert?
Í rannsókn OECD er bent á tvær meginleiðir sem stjórnvöld geta farið til að breyta þessu mynstri.
Í fyrsta lagi: réttara verðlag á orku. Víðtæk kolefnis- og orkuverðlagning ásamt markvissum stuðningi við fjárfestingar í nýsköpun sem leiðir til betri nýtingar á orku er varanlegra nálgun, frekar en að gefa afslátt á orku. Þegar fyrirtæki borga raunverulegt verð fyrir orku, er orkunýtni ekki bara umhverfismál heldur er það beinn sparnaður. Spurning er því hvernig skipakostur landsins er að nýta orkuna, er það gert með besta móti eða er pláss fyrir umbætur.
Í öðru lagi: bætt samkeppni og að gera góða tækni aðgengilega. Atvinnugreinar sem eru í samkeppni og stunda nýsköpun eru ekki endilega öflug í að dreifa tækninýjungum á sviði orkunýtingar. Fyrirtæki sem eru síður að standa sig og eru í samkeppni reyna að bæta sig eða verða annars undir í samkeppninni. En þessi fyrirtæki eiga það til að dreifa tækninni betur.
Þetta varðar okkur öll
Það má líta á að þetta sem vandamál fyrirtækjanna. En í reynd er þetta mál sem varðar okkur öll.
Rannsókn OECD leggur áherslu á að hvers kyns aðgerðir stjórnvalda til að mýkja áhrif af hækkuðu orkuverði ættu að beinast að þeim sem þurfa mest á aðstoð að halda, þær þurfa að vera tímabundnar og tryggja að hvatar til að spara orku séu til staðar.
Þegar yfirvöld verja skattpeningum í að niðurgreiða hátt orkuverð til að hlífa fyrirtækjum sem ekki gera allt til að stunda nýsköpun í að spara orku, þá er eitthvað að. Þetta þýðir að skattpeningar fara í óarðbærar aðgerðir og umhverfisáhrifin verða talsverð, vegna ópþarfa orkunotkunar.
Ísland og verkefnið framundan
Ísland er kannski í sérstakri stöðu. Við höfum aðgang að endurnýjanlegri orku sem flestar þjóðir hafa ekki. En það þýðir ekki að við séum laus við þetta vandamál. Orkufrekari greinar hér á landi, svo sem stóriðja, þarf vissulega að skoða í ljósi þessara rannsókna.
Spurningin er ekki hvort tæknin sé til að bæta nýtingu á orku. Spurningin er hvort stjórnvöld og fyrirtæki hér heima séu tilbúin að nýta þau tækifæri sem þegar eru til staðar.